Fara í meginmál

Vörunúmer: CS7611FL

Miele

WOK spanhelluborð - SmartLine raðeining

Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

SmartLine raðeining frá Miele með WOK spanhellu. Raðeiningin er um það bil 40 cm á breidd og mjög öflug. Hellan er með sitt eigið talnaborð sem kviknar sjálfvirkt á þegar pottur er settur á helluna og einungis svæðið undir pottinum hitnar. Raðeiningin getur haldið mat heitum, er með minni, mögulegt er að pása eldun og láta hellu slökkva sjálfkrafa á sér að ákveðnum tíma liðnum. SmartLine raðeiningum er hægt að raða upp á mismunandi hátt eins og hentar vegna þess að þær samþættast fullkomlega. Raðeininguna er bæði hægt að fella niður í borðplötu og hafa yfirfellda.

734.990 kr.

Sérpöntun

WOK spanhelluborð - SmartLine raðeining

Skynjar potta og stærð þeirra

Besta mögulega orkunýting

Ef pottur er staðsettur á eldunarsvæði kviknar sjálfkrafa á tilheyrandi talnarunu þegar kveikt er á helluborðinu. Óþarfi er að kveikja handvikt á eldunarsvæðinu. Þetta tryggir bestu mögulegu orkunýtingu.

Spanhelluborð - SmartLine raðeining

SmartSelect

Auðveld notkun með SmartSelect

Aflstillingar og tíma er hægt að stilla með ótrúlega auðveldum og hröðum hætti með SmartSelect. Hvert eldunarsvæði hefur sitt eigið talnaborð með gulu ljósi sem er auðvelt álestrar frá hvaða sjónarhorni sem er. Tímastillingar eru auðveldari með SmartSelect, þar sem "Tímastilli" og "Hella slekkur á sér sjálfvirkt" er hægt að stilla inn sitt í hvoru lagi.

Spanhelluborð - SmartLine raðeining

Öryggisvirkni 

Fyrir aukið öryggi og fullvissu 

Besta vörnin í öllum aðstæðum: öryggislæsing helluborðsins veitir áhrifaríka vörn gegn því að óvart sé breytt um stillingar á meðan helluborðið er í notkun. Ef kveikt er á eldunarsvæði á sama aflstigi í óeðlilega langan tíma eða ef enginn pottur er á helluborðinu, slokknar sjálfkrafa á því eftir ákveðinn tíma. Helluborðið tilgreinir einnig hvaða hellur eru heitar, en það minnir þig á að snerta ekki eldunarsvæði sem eru ennþá heit viðkomu.

WOK spanhelluborð - SmartLine raðeining

Keramikgler 

Auðvelt í þrifum

Keramikgler er mjög auðvelt í þrifum. Skvettur og önnur óhreinindi eru fjarlægð á einfaldan og þægilegan hátt, þökk sé sléttu yfirborðinu. Þrif spanhelluborða eru sérstaklega auðveld þar sem yfirborð þeirra helst tiltölulega kalt og matur brennur þar af leiðandi mjög sjaldan við þau.