
Kaldbruggun með einni snertingu
X10 býður upp á fjölbreytt úrval af köldum kaffidrykkjum fyrir staði eins og til að mynda skrifstofur og sjálfsafgreiðslu. Kaldbruggun á nýmöluðu kaffi með einni snertingu - ekkert hylki. Þessi sérstaka uppáhellingaraðferð, sem er þróuð af JURA, púlsar köldu vatni hægt í gegnum nýmalað kaffið við háan þrýsting. Vatnið tekur upp ávaxtakenndan ilm sem skilar sér í náttúrulegum og svalandi köldum kaffidrykkjum.

Fjölbreytt úrval kaffidrykkja fyrir mismunandi smekk
X10 býður upp á mikla fjölbreytni. Sjálfvirka professional kaffivélin býður upp á hámarks nautn þegar kemur að kaffi, en mögulegt er að hella upp á 35 mismunandi kaffidrykki með henni. Úrvalið spannar allt frá klassískum kaffidrykkjum, eins og espresso og cappuccino, til kaffidrykkja með mjólk sem hægt er að hella upp á tvo í einu, eins og latte macchiato, og einnig til nýjunga eins kaldbruggaðra kaffidrykkja. Allir drykkirnir flæða í bollann í gegnum tvöfalda kaffi- og cappuccino stútinn, með aðeins einni snertingu eins og venjulega. X10 endurskilgreinir kaffiupplifun á stórum skrifstofum og í sjálfsafgreiðslu á fordæmalausan hátt.

Sterkbyggð og fáguð
Form fylgir virkni - þetta er kjörorð X10, sem einkennist af skírum línum í hönnun og einfaldleika við notkun. Heitt vatn, mjólk og kaffi sameinast allt í tvöfalda kaffi- og cappuccino stútnum sem er einstaklega þægilegt. Framhlið úr svörtu stáli undirstrikar tímalausan glæsileika sjálfvirku professional kaffivélarinnar. Enn fremur tryggir 3.5” snertiskjár X10 og skýrir takkar sem eru framan á henni, þægilegan aðgang að snjallri valmyndinni.

Jafn einstök og þínar þarfir eru
Mögulegt er að tengja X10 við aukahluti eins og mjólkurkæli eða greiðslukerfi sem eru sérstaklega hannað fyrir JURA professional kaffivélar. Þannig er hægt að búa til klæðskerasniðna heildarlausn varðandi kaffi fyrir fjölbreyttar aðstæður.
