Form og hlutverk
Renna saman í eina heild
-ada9bd1a.jpg&w=3840&q=80)
Grundvallarregla naumhyggjunnar byggist á viðkvæmu jafnvægi þess sem er nauðsynlegt og þess sem er óþarft. Þetta er einnig kjarninn í bulthaup b1, þar sem notkun einfaldra rúmfræðilegra forma og vandlega úthugsaðs hlutverks eru tengd órjúfanlegum böndum og skapa tilfinningu fágaðs jafnvægis. Rétt hlutföll og vandlega ígrunduð efnisþykkt skapa eldhús sem er áþreifanlega notalegt og algjört augnayndi.
-96af3e0b.jpg&w=3840&q=80)
-75890cc5-900x900.jpg&w=3840&q=80)
Einstakt grip: skásettar framhliðar sem handföng
Snerting er nauðsynleg breyta þegar kemur að því hvernig við skiljum heiminn. Mjúkar sniðskornar brúnir bulthaup b1 eru þægilegar viðkomu. Skásett handföngin og ákjósanleg griphæð tryggja vinnuvistfræðilega upplifun þegar útdraganlegar einingar, skúffur og hurðir eru opnaðar. Þessi samfellda handfangsbrún er einkennandi fyrir hreina, lárétta uppbyggingu b1.
-f0d42199.jpg&w=3840&q=80)
Borðplata: hnitmiðuð hönnun
Borðplatan myndar traustan grunn fyrir vask og helluborð og er hlutfallslega samræmd með heildarútliti bulthaup b1. Mögulegt er að niðurfella helluborðið að fullu í 6 cm þykka borðplötuna án þess að fórna neinu af geymsluplássinu þar undir. Valkostir efniviðs borðplötu eru laminate húðun og ryðfrítt stál.
-5e7ddead.jpg&w=3840&q=80)
Aðstaða við vatnsinntak: skilvirk og praktísk
Á meðan þróun á aðstöðu við vatnsinntak átti sér stað, var allt kapp lagt í það að gera þína vinnu í eldhúsinu auðveldari. Blöndunartækinu, sem er sérhannað af bulthaup, er hægt að stjórna á einfaldan hátt með annarri hendi. Einnig er mögulegt að bæta við sigti til viðbótar við vaskinn til þess að þrífa ávexti og grænmeti á áreynsluminni hátt.
-3d1e0d21.jpg&w=3840&q=80)
Barborð: samkomustaður í eldhúsinu
Cappuccino á morgnana, fljótlegur hádegisverður um miðjan dag, afslappaður drykkur fyrir kvöldmat: barborðið tekur alltaf vel á móti þér. Þetta er staðurinn þar sem fólk kemur saman til að njóta og spjalla. Barborðið, sem er fáanlegt úr gegnheilum aski eða valhnotuvið, er alltaf fullkomin ástæða til þess að staldra við.
-ee59c9b7.jpg&w=3840&q=80)
-8a57f1fb-900x900.jpg&w=3840&q=80)
Hilla: opið eða lokað geymslurými
Hilla veggskápseiningarinnar er aðlaðandi augnayndi með rennihurð sem hægt er að fá hvíta eða úr gagnsæju hvítu gleri. Hún er einföld og skilvirk geymslulausn sem gerir þér kleift að velja hvað þú vilt hylja eða hafa fyrir allra augum. Samspil opinna og lokaðra geymslurýma býður upp á möguleika þess að gefa eldhúsinu þínu nýtt útlit, aftur og aftur.