Einfaldleiki
bulthaup b1, þar sem það nauðsynlega er í brennidepli

Marga hluti í lífinu er hægt að gera auðveldari og betri með skynsamlegri einföldun. bulthaup b1 fylgir þessari reglu, vinnuvistfræði línunnar er mjög góð og ber hönnun b1 merki svonefndrar hreinstefnu. Þegar það nauðsynlega er í brennidepli, leiðir það af sér úthugsaða notkun fárra gæðahráefna og vandlega valinna lita. Auðvelt er fyrir fólk í slíku umhverfi að einbeita sér að mikilvægustu hlutunum í lífinu; að njóta með fjölskyldu og vinum. bulthaup b1 eldhús er jafnan samsett úr aðskildum pörtum: eldhúseyju, veggskápseiningu og samstæðu hárra skápa. Innvols b1 hefur einnig yfirbragð einfaldleika, allt kemur saman og myndar eina lífræna heildarmynd.

Eldhúseyja: staður fyrir vinnu og samræður
Eyja gerir þér kleift að snúa að fólkinu í herberginu. Þannig getur þú deilt eldamennsku og samræðum með vinum og fjölskyldu á sama tíma. Eyja getur haft fjölmörg hlutverk og meðal annars verið staðsetning fyrir vask og helluborð. Þar er vinnuaðstaða fyrir undirbúning eldamennsku og eldun, en auk þess býður eldhúseyja upp á nægt geymslurými.


Veggskápseining: sjálfstæð mubla
Ytra útlit bulthaup b1 veggeiningar líkist skúlptúr. Sjálfstætt form hennar gerir þér mögulegt að staðsetja eininguna frístandandi við vegg. Notagildi mublunnar má einnig auka með því að samþætta hana við grunnþætti í eldhúsinu, eins og t.d. vask.

Háir skápar: besta nýting á rými
Ef þú þarft meira geymslurými t.d. til þess að byggja inn heimilistæki, getur b1 vaxið upp á við til þess að mæta þörfum þínum. Skápar sem ná alveg upp í loft eru jafnvel mögulegir. Skipulag tekur tillit til þinnar persónulegu vinnuvistfræði og umlykjandi arkitektúrs.

Form og hlutverk: renna saman í eina heild
Form og hlutverk eru óaðskiljanleg hjá bulthaup. Sambandið er í fullkomnu jafnvægi og staðfestir einkennandi útlit bulthaup b1 þessa fullyrðingu. Sérhvert smáatriði gefur til kynna notkun einfaldra forma með vandlega úthugsuðu hlutverki.

Innri búnaður: skýrleiki í hverju smáatriði
Einföld rúmfræðileg form einkenna innvols og mynda tengingu við skýrleika ytra byrgðis. Hólfun og skipulag í skúffum og útdraganlegum einingum næst með fallegum kössum úr birkivið sem mögulegt er að fjarlægja. Einfaldleikinn í innri búnaði fullkomnar bulthaup b1, og skapar sjónrænt heildarjafnvægi.
b1 hefur ferskt útlit, býður upp á nýja möguleika og er á aðlaðandi verði. Ef þú vilt ekki taka neinum málamiðlunum þegar kemur að fagurfræði, skilvirkni, endingu efniviðs, hágæða handverki og ert að leita að eldhúsinnréttingu sem hefur sérstakt virði, þá er b1 frá bulthaup svarið.
-0a596c9e-900x1189.jpg&w=3840&q=100)