Innri búnaður
Skýrleiki í hverju smáatriði

Gæði og karakter bulthaup b1 sést á innvolsi línunnar, sem einkennist af hlýlegum birkivið. Innra byrði skúffa og útdraganlegra eininga er hægt að afmarka á þægilegan hátt til að geyma matvæli, eldhúsáhöld, leirtau og hnífapör. Allt kemur saman og myndar eina lífræna heildarmynd.


Grunnskápar: samræmd heildar hughrif
Skúffur og útdraganlegar einingar úr birkispón skapa hlýja andstæðu við fallegar hvítar framhliðarnar. Þegar skúffurnar og útdraganlegu einingarnar eru dregnar út, er bæði allt innihald þeirra sýnilegt með skýrum hætti og við höndina. Öðrum kosti, geta grunnskápar verið afmarkaðir með stílhreinum hvítum hillum.
-acb1953d.jpg&w=3840&q=80)
Búnaður á hreyfingu – hreinn einfaldleiki og skipulag
Úrval fjölbreytts búnaðar gerir þér kleift að skipta skúffum upp og skapa skipulagt geymslurými. Með viðarkössum, stöndum fyrir hnífa og kryddkrukkur, er hreinn barnaleikur að skipuleggja innvols í bulthaup b1.

-96499770-900x809.jpg&w=3840&q=80)
Viðarkassar: listilega gerðir
Gegnheilir viðarkassar eru falleg viðbót við innri hönnun. Fullkominn frágangur viðarsamskeyta er einstakt augnayndi og sýnir yfirburði bulthaup handverks. Viðarkassana, sem voru upphaflega hannaðir sem skilrúm fyrir skúffur og útdraganlegar einingar, er einnig hægt að nota uppi á borðplötunni sem viðbótar geymslurými.