Fara í meginmál

 Eldamennska og ánægja í gnægð rýmis 

Þegar við vinnum með höndunum þurfum við bæði skipulagt umhverfi og nægt rými til þess að skapa. bulthaup b2 vinnubekkurinn getur verið samsettur úr mismunandi einingum sem gegna ólíkum hlutverkum, t.d. einingum fyrir þvott, söxun, undirbúning eldamennsku eða eldun. Eða bekkurinn getur einfaldlega verið staðurinn þar sem fólk safnast saman. Viðeigandi útfærslu er hægt að velja eftir hentugleika hvers og eins. Vinnubekkurinn verður þar af leiðandi aðalstaðurinn í eldhúsinu, sem býður bæði upp á algert frelsi til hreyfinga í kringum vinnuaðstöðuna, auk þess að vera staðurinn þar sem vinir og fjölskylda safnast saman til að deila notalegum stundum.

Aðstaða við vatnsinntak: auðveld umhirða og hagnýtni 

Vaskurinn er innbyggður í einingu úr graníti eða ryðfríu stáli á óaðfinnanlegan hátt. Þessi samskeyti og gerð efniviðar tryggir auðvelda umhirðu og framúrskarandi hreinlæti. Blöndunartæki sérhannað af bulthaup gerir þér auk þess kleift að stjórna flæði og hitastigi vatns á einfaldan hátt, með annarri hendi.

Praktískir aukahlutir: alltaf við höndina 

Á enda vinnubekksins er hagnýt gróp sem gerir þér kleift að hengja ýmis ílát og eldhúsáhöld. Hægt er að staðsetja praktíska aukahluti í grópina eftir hentugleika, þannig að þeir séu alltaf við höndina þegar þörf krefur.