Eldhúsverkstæði
bulthaup b2, þar sem þrír partar verða að einu eldhúsi

Innblástur b2 línunnar frá bulthaup kemur frá gullnu reglu handverksmannsins: „Verkfæri og efniviður verða alltaf að vera snyrtileg og við höndina.“ Einfalt lögmál sem breytir eldhúsinu í vinnustofu, og hefur í för með sér bæði mikið frelsi til hreyfinga og einstakt skipulag. Með bulthaup b2 er eldhúsið smækkað niður í þrjá lykilparta: vinnubekk, vinnuskáp og tækjaskáp. Þessir tímalausu partar eru ekki fastir við kyrrstæða veggi og má hreyfa frjálslega um rýmið. Þökk sé þessum mikla sveigjanleika og hreyfanleika, er auðvelt að aðlaga b2 að nýjum breytingum sem gætu orðið á rýminu sem eldhúsið stendur í.

Vinnuskápur: öll áhöld við höndina
Verkstæðið er við fingurgóma notandans með vinnuskápnum. Við opnun skápsins fæst yfirsýn yfir allt innihald eldhússins. Notandin er með fullkominn aðgang að öllum eldhúsáhöldunum sem hann þarf, allt er innan seilingar á sínum úthlutaða stað. bulthaup þjappaði, af þessum sökum, geymslurýminu saman niður í nauðsynlega stærð. b2 vinnuskápur fylgir skipulagslögmáli verkfæraskáps handverksmannsins og gerir að sínu.

Vinnubekkur: eldamennska og ánægja í gnægð rýmis
Vinnubekkurinn sameinar vinnuborð, vask, eldunaraðstöðu og síðast en ekki síst aðstöðu til þess að borða. Hann er hægt að nota sem mublu sem þjónar margvíslegum tilgangi. Mismunandi módel vinnuborða, vaska og eldunareininga eru í boði og hægt að raða þeim saman eftir hentugleika.

Tækjaskápur: lokapunktur vinnustofunnar
Tækjaskápurinn fullkomnar eldhúsverkstæðið, en hann rúmar heimilistæki eins og ofna, uppþvottavélar og kæliskápa. Auðvelt er að ná til alls þegar skápurinn er opinn, og þegar hann er lokaður eru öll tæki falin á fallegan máta.
Innblástur b2 er fenginn frá verkstæði handverksmanns. Eldamennskan og eldhúsið eru hugsuð upp á nýtt og útkoman er eldhúsverkstæði. Hönnuðir bulthaup b2 hafa skapað hin fullkomnu geymsluskilyrði. Útkoma þessarar snjöllu samþjöppunar á geymslurými hefur í för með sér hagkvæmari nýtingu á plássi en litlar eldhúsinnréttingar hafa upp á að bjóða.
