Vinnuskápur
Öll áhöld við höndina

Fullur sýnileiki á öllu sem þú þarft. bulthaup b2 vinnuskápur fylgir þessu skipulagslögmáli verkfæraskáps handverksmannsins eftir á nákvæman hátt. Hönnunarteymi bulthaup tæmdi hefðbundið eldhús, valdi síðan og setti saman nauðsynlegustu “verkfærin”. Út frá þessum nauðsynlegu verkfærum var hið fullkomna geymslupláss b2 vinnuskápsins ákvarðað, þannig að hann gæti geymt allt sem þú notar reglulega: potta, pönnur, eldhúsáhöld og leirtau. Allt innihald skápsins sést á skýran hátt, er við höndina og nákvæmlega á þeim stað sem því er ætlað.


Einfaldur skápur: hámarks nýting sem tekur lítið gólfpláss
Vinnuskápurinn er einnig fáanlegur sem einfaldur skápur eða helmingi minni en sá hefðbundni. Mögulegt er að setja viðbótar álramma í minni gerðina, alveg eins og stærri skápinn. Rammann er til dæmis hægt að hlaða með kryddkrukkum og matarílátum, auk þess að setja hillur t.d. fyrir vínedik og olíur.

Geymslurými: fyrir skýrleika og skipulag
Snjöll þjöppun geymslurýmisins gerir útdraganlegar einingar og skúffur óþarfar. Viðarhillur með rimlum úr gegnheilum hlyn og álhillur sem hægt er að bæta við, gera þér kleift að skipuleggja geymslurými skápsins. Útkoman er falleg heildarmynd, jafnt að innan sem að utan.


Búnaður: smáatriðin skipta miklu máli
Alveg eins og í vinnuskáp handverksmannsins þar sem geyma má verkfæri, er hægt að geyma allt sem notað er í matargerð í b2 vinnuskápnum. Hurðardýptin býður upp á fullkomnar aðstæður til þess að geyma glös og ýmis áhöld til matreiðslu.