Form og hlutverk
Allt þar sem þú þarfnast þess

Form og hlutverk renna saman í eina heild í bulthaup vörum. Bæði hönnun og nytsemi klæðskerasniðin að einstaklingnum. bulthaup eldhúsumhverfi auðveldar alla vinnu með nákvæmri aðlögun að persónulegum aðstæðum notandans, hvort sem um ræðir að skapa geymslurými, undirbúning og framreiðslu rétta, eða vinnu kringum vask og helluborð. Lífsgæðin verða að endingu betri í heild sinni.
-15347497.jpg&w=3840&q=80)
Geymsla: skapaðu rými þar sem þú þarft á því að halda
Ein af mikilvægustu kröfum hvers eldhúss er geymslurými. Til þess að geta nýtt geymslurými sem best þarf að nota það pláss sem er til staðar á skilvirkan hátt og auk þess þarf rýmið að vera sveigjanlegt og þægilegt fyrir notandann. Þar af leiðandi skiptir máli að skipuleggja það nákvæmlega eftir því hvernig þú vinnur. Þú gætir viljað sýna persónulega muni fyrir allra augum eða hylja þá bak við lokaðar dyr. Hvort heldur sem er, tryggir bulthaup að allir hlutirnir þínir séu fallega framsettir eða úr augnsýn.


Staðbundinn hleri: fyrir fallegt heildarútlit
Mögulegt er að geyma lítil raftæki bak við hlera með rúlluskápsopnun og losa þannig um verðmætt rými á vinnuborði. Opinn hleri tryggir auðvelt aðgengi að tækjunum þegar þú þarft á þeim að halda. Lokaður hleri blandast síðan náttúrulega saman við eldhúsið og myndar fallegt heildarútlit. Staðbundinn hleri með rúlluskápsopnun er fáanlegur úr áli eða ýmsum litbrigðum af laminate.
Hilla: hentugur staður fyrir persónulega muni
Gegnheilt getur verið mjög létt. 10 mm þykkar hillur láta hluti bókstaflega líta út fyrir að vera fljótandi. Hluti sem þú hefur ástúðlega safnað saman og vilt hafa í kringum þig. Út frá fagurfræðilegu sjónarmiði, var b3 hillan hönnuð með þeim hætti að engin sjáanleg samskeyti væru til staðar sem gætu truflað augað. Hillan stendur einfaldlega fram úr veggpanelinum á fágaðan hátt.

”Pocket door skápur”: framúrskarandi hönnun á allan hátt
Fagurfræði og hagnýtni eru í frábæru jafnvægi í þessari einingu. Hurðirnar eru sterkbyggðar og þungar, en á sama tíma er einfalt og létt að stjórna þeim. Jöfnunarfesting tryggir fullkomna hurðarsýn, jafnvel eftir margra ára notkun. Skápurinn gerir þér kleift að geyma bæði eldhúsáhöld og raftæki á þægilegan hátt á bak við lokaðar dyr.

“Function box”: aukið geymslurými
“Function box” b3 línunnar gera þér kleift að nota veggrýmið fyrir framan þig til þess að geyma hluti. Þú ákveður hvernig þú vilt nýta þetta auka geymslurými. Valmöguleikar eru til dæmis hnífastandur, skurðarbretti, eða blöndunartæki. Allar gerðir ”function boxa” eru með innbyggðum ljósabúnaði.

Undirbúningur fyrir eldamennsku og eldun: hannaðu þína eigin vinnuaðstöðu
bulthaup skapar óviðjafnanlegar vinnuaðstæður, þannig að gleðin við eldamennskuna geti verið í brennidepli. Þú munt verja mörgum hamingjuríkum árum í eldhúsinu við undirbúningsvinnu og meðhöndlun hráefna sem eru stundum brennandi heit eða ísköld. Þegar kemur að vinnuaðstöðu í eldhúsinu skipta tveir hlutir miklu máli: gæði yfirborðs vinnuflatar og rétt lýsing.
-560a85be.jpg&w=3840&q=80)

Borðplata: svarið við þínum þörfum
Vinnuaðstaðan er mest notaða rými eldhússins. Allur efniviður sem notaður er í borðplötur uppfyllir kröfur daglegrar eldamennsku, er þolinn gagnvart þrýstingi og höggum, auk hita. b3 borðplötur eru auk þess samræmdar með framhliðum og hliðarpanelum til þess að skapa fagurfræðilega heildarsýn.
Lýsing: ljós þar sem þér hentar
Rétt lýsing er mjög mikilvæg við eldhúsverkin ef þau eiga að verða árangursrík. Þetta er nauðsynleg krafa þegar kemur að vinnuaðstöðu. Ljós skapa auk þess umhverfislýsingu og baða rýmið með dásamlegri birtu sem meðal annars er hægt að njóta þegar setið er við borðstofuborðið. Þannig má nota lýsingu hvernig sem hentar til þess að bæta upplifun við eldun og borðhald, og skapa einstakt andúmsloft í rýminu.

Aðstaða við vatnsinntak: einstakt kerfi sem býður upp á nýja möguleika
Hendur þvegnar, grænmeti þrifið og skorið niður, diskar þvegnir upp – með réttum búnaði verður vaskurinn að fjölhæfri vinnuaðstöðu. bulthaup hefur hannað sérstakar lausnir fyrir þetta mikilvæga svæði og skapað viðbótar vinnufleti með skurðarbrettum og sigtum. Ólíkar samsetningar blöndunartækis, mismunandi breiðra vaska og ýmiss hagnýts búnaðar, veita hámarks sveigjanleika og samræmast góðri vinnuvistfræði. Þetta úthugsaða heildræna kerfi auðveldar alla daglega vinnu.


Blöndunartæki: fullkomin samsetning forms og hlutverks
bulthaup blöndunartæki gerir þér kleift að stjórna flæði og hitastigi vatns á auðveldan hátt, með handleggnum eða jafnvel á meðan þú heldur á þungri pönnu í annarri hendi. Ólíkir möguleikar eru í boði þegar kemur að því að staðsetja blöndunartækið, en það getur verið á borðplötunni, beint út úr veggnum eða út úr “function boxi”. Í öllum tilfellum er tryggt að blöndunartækið sé staðsett þannig að jafnvel sé hægt sé að fylla háa potta af vatni.
Hagnýtur flatur vaskur: undirbúningsvinna einfölduð
Gerðu meira úr aðstöðunni hjá vaskinum. Hagnýtur flatur vaskur er niðurfelldur í borðplötuna og mögulegt að bæta ýmsum hagnýtum búnaði við. Vaskurinn er burðarsvæði fyrir þennan ólíka búnað sem er innfelldur í vaskinn á handhægan hátt. Innfelldur búnaður, eins og sigti eða skurðarbretti, bæta aðstöðuna og verða þægileg framlenging á vinnusvæðinu.