Fara í meginmál

Frelsi til að hanna

bulthaup b3 er jafn einstakt eins og þú ert

Með bulthaup b3 hefur þú frelsi til þess að láta þína hönnun og drauma verða að veruleika. Þú getur skapað þínar eigin vistarverur með fjölbreyttum handvöldum hráefnum sem passa við karakter rýmisins og þeirra einstaklinga sem þar búa. Fullkomið jafnvægi næst með handgerðum frágangi sem tekur bæði tillit til vinnuvistfræði en líka til umlykjandi arkitektúrs. Verkfræðin á bak við bulthaup b3 er nákvæmlega útfærð og einfaldlega virkar. 

Multi function veggur: þar sem rými og innrétting sameinast

Heild er meira en samlagning tilheyrandi hluta. Veggpanelakerfið þjónar þeim tilgangi að vera burðarvirki fyrir vegghengda skápa, styður virkni eins og vatnsinntak, og skapar geymslurými. Margs konar upphengdar geymslulausnir eru í boði og býður kerfið auk þess upp á skipulagskerfi til dæmis fyrir hnífa. Veggpanelakerfið tengir innréttinguna við rýmið og útkoman er ásýnd fljótandi eldhúss.

Eldhúseyja: miðpunktur boðskipta

Eyja gerir fólki kleift að hreyfa sig frjálslega um eldhúsrýmið. Hún verður miðpunktur boðskipta, skemmtunar og eldamennsku sem þú deilir með öðrum. Tvær útfærslur á eldhúseyju eru mögulegar sem hæfa mismunandi listrænum smekk og persónulegum kringumstæðum. Annars vegar eyja sem stendur beint á gólfi og hins vegar eyja sem stendur á fótum.

Eldhúseyja sem stendur beint á gólfi lítur út eins og skúlptúr í rýminu og býður notandanum upp á mjög gott geymslurými. Eyja sem stendur á fótum getur auðveldlega haldið hvaða þyngd sem er, hefur yfirbragð léttleika og deilir fagurfræðilegri ásýnd b3 línunnar.

Efniviður: ástríða fyrir upprunaleika

Efniviður bulthaup er ósvikinn, nákvæmlega eins og hann lítur út, lyktar og er viðkomu. Hvort sem um ræðir aldargamla mýrar eik, laminate húðun sem er lituð í gegn, eða lökkuð marglaga yfirborð, sérhver áferð og frágangur fer fram í höndum sérþjálfaðs handverksfólks bulthaup. Útkoman er að sérhvert b3 eldhús er einstakt.

Skoða nánar

Form og hlutverk: allt þar sem þú þarfnast þess

Þér mun líða vel frá fyrstu stundu í bulthaup b3 eldhúsinu þínu. Þetta er vegna þess að þú hefur staðsett allt eftir þínu höfði. Hámörkun einfaldleika og þæginda næst með þessu varðandi geymslurými, vinnuaðstöðu og eldamennsku. b3 skapar þannig fullkomið jafnvægi á milli forms og hlutverks. 

Skoða nánar

Búnaður: skapaðu þitt eigið skipulagskerfi

Eldhúsið er staðurinn þar sem fólki líður eins og heima hjá sér. Þar fer fram eldamennska. Þar fer lífið fram. Og þar vinnur fólk með höndunum og réttum áhöldum. Þar af leiðandi er nauðsynlegt að eldhúsáhöld og innihaldsefni séu innan seilingar. Þú hefur frjálsar hendur til þess að raða alveg eins og þú vilt.

Skoða nánar

b3 er ímynd sjálfstæðs arkitektúrs sem fer ótroðnar slóðir við að gæða eldhús með persónulegum stíl og hefur til þess endalausa valmöguleika. Rannsóknir og þróun á bak við bulthaup b3 stóð yfir í 8 ár og þar á eftir tók við nær áratugur þar sem gerðar voru endurbætur á kerfinu. Útkoman er áreiðanlegustu og hátæknilegustu innréttingar sem í boði eru. bulthaup b3 er fyrir fólk sem vill aðeins eitt: það besta!

Myndir: bulthaup b3