Búnaður
Skapaðu þitt eigið skipulagskerfi

Skipulag er auðvelt með bulthaup b3. Það tryggir að allt sé við höndina þegar þú þarft á því að halda. Með góðu skipulagi er auðvelt að finna alla hluti á þeim stað sem þú velur að setja þá. Þú getur skapað þitt eigið skipulagskerfi í skúffum og útdregnum einingum með hagnýtum prismum og margs konar sveigjanlegum búnaði. Þú getur einnig hannað heila veggpanela algjörlega eftir þínum þörfum. Mögulegt er að festa hagnýtan búnað á panelana sem hjálpar þér að halda fullkomnu skipulagi á eldhúsáhöldum og búnaði.

Skúffur og útdraganlegar einingar: fallegar út í gegn
Til þess að fólk geti notið eldhússins síns að fullu, þurfa fegurð og gæði að haldast í hendur. Fegurð b3 sést einnig á innvolsi línunnar. Þrjár gerðir skúffa og útdraganlegra eininga eru mögulegar: stál, ál og viður. Yfirburðir bulthaup handverks eru greinilegir og má meðal annars sjá á viðarsamskeytum sem eru tæknilega framúrskarandi.


Innvols: staður fyrir sérhvert áhald
Innra byrgði eldhússins segir margt um persónuleika notandans, hvað hann eldar og borðar. Lífsmáti fólks tekur oft breytingum með tímanum og það gildir einnig um áhöldin í eldhúsinu. bulthaup b3 býður upp á fullkomnar geymsluaðstæður fyrir hverja aðlögun og tryggir einfalt aðgengi notandans að áhöldunum sínum hvenær sem þörf er á, hvort sem um ræðir samansafn jurta eða krydda, hnífastand eða álpappírshaldara.
-04196d23.jpg&w=3840&q=80)
Hagnýtir prismar: eins sveigjanlegir og þörf er á
Þú getur sérútbúið skúffurnar með prismum og þar með gert þær handhægari. Mögulegt er að nota við, plast eða ryðfrítt stál, allt eftir persónulegum smekk. Prismarnir eru færanlegir og auðvelt breyta skipulagi í skúffunum eftir þörfum t.d. samhliða breytingum sem verða á eldhúsáhöldum með tímanum.
-3ec54993.jpg&w=3840&q=80)

Hagnýtur búnaður: innan seilingar á þægilegan hátt
Veggpanelakerfið veitir fullkominn vettvang til þess að setja hagnýtan búnað í eldhúsið sem þú þarft að komast í oft og á skjótan máta. Hlutum og áhöldum er þannig hægt að raða á vegginn svo þau séu ávallt við höndina. Ekki skemmir fyrir að auðvelt er að breyta staðsetningu hagnýta búnaðarins ef þörf skapast.