Efniviður
Ástríða fyrir upprunaleika

Yfirborð höfða til skynfæra okkar. Fallegt yfirbragð rafhúðaðs áls, flauelsmjúkur frágangur lakks eða hárfínt samspil lita og stefnu trefja í viðarspóni. Virðing fyrir uppruna efniviðs og ástríða fyrir smáatriðum sést bersýnilega í öllu framleiðsluferli bulthaup. Lokafrágangur er síðan fullkomnaður af sérþjálfuðu handverksfólki bulthaup sem hefur í för með sér gæði, sem jafnvel vélar geta ekki staðið undir.

Laminate húðun: gæði og fullkomnun fyrir öll skynfæri
Það er til laminate húðun og svo er til bulthaup laminate húðun. Sú síðarnefnda er gegnlituð á jafnan hátt, ótrúlega þolin og mjög endingargóð. Útlit laminate húðaðs yfirborðs er slétt og minimalískt, alger unun að snerta og horfa á. Framhliðar, borðplötur og “monoblock” eldhúseyjur líta í þokkabót út fyrir að koma úr einu stöku móti.

Málmur: sjarminn liggur í andstæðunni
Karakter málms er raunsannur. Ál og ryðfrítt stál eru tæknileg efni sem hafa hlýtt og mjúkt yfirbragð þrátt fyrir málm eiginleika sína. Útlit yfirborðs úr málmi breytist með sjónarhorni áhorfandans. Hughrifin eins og margbrotinn kraftur inni í herberginu. Samblöndun málms með efnivið eins og laminate, við eða lakki þegar kemur að hönnun, er fyrirmyndar leið til þess að skapa andrúmsloft úthugsaðrar fágunar.


Ál: skapaðu þitt eigið einstaka umhverfi
Einstakur litur efniviðarins breytist með ljósi. Útkoman lýsir sér eins og flæðandi röð nýrra hughrifa í rýminu, hvort sem þú notar álið í eldhúsinu eða öðrum vistarverum. Rafhúðun áls skapar þá seiglu sem efniviðurinn þarf að búa yfir og myndar auk þess blæbrigði ljósra og dökkra litatóna.
Ryðfrítt stál: karakter og einstaklingsbundið yfirborð
Sérhver efniviður segir sína eigin sögu. Saga ryðfrís stáls lýsir efnivið sem stenst gríðarlegar tæknilegar og hagnýtar kröfur, líkt og þær sem gerðar eru í atvinnueldhúsum. Ryðfría stálið segir einnig frá þinni persónulegu sögu í eldhúsinu. Með tímanum sést vottur af þinni notkun, sem skapar einstaklingsbundið yfirborð og einstakan karakter.

Lakk húðun: yfirborð í sínu fallegasta formi
Varla er til nokkur efniviður sem hentar betur en lakk til þess að setja einstaklingsbundinn stimpil á vistarverurnar. Heill litaheimur er í boði sem hægt er að nota bæði í eldhúsum og öðrum vistarverum. Hver einasta málaða framhlið fer í gegnum nákvæmt framleiðsluferli. Eftir hverja lakk umferð fer frágangur framhliða fram í höndum, alveg þar til samskeytin á milli yfirborðs og brúna verða slétt og felld.


Gljáandi lakk: háglansandi yfirborð
Við gerum okkur grein fyrir þeim áhrifum sem efniviður getur haft, þegar við sjáum persónulega muni speglast í lakk húðaðri framhlið. Spegiláhrifin sem myndast á gljáandi lakkinu láta herbergið líta út fyrir að vera stærra en það er.
Matt lakk: svigrúm fyrir einstaklinginn
Útlit matts lakks er róandi bæði fyrir augað og andann. Efniviðurinn hörfar og skapar með því svigrúm fyrir það líf sem á sér stað í eldhúsinu.
Lakk sem er mjúkt viðkomu: verkar þægilega á augu og fingur
Efniviðurinn kollvarpar venjulegum væntingum sem gerðar eru til lakkaðs yfirborðs. Sjónræn og áþreifanleg upplifun kemur á óvart. Fingur upplifa flauelsmjúkt yfirborð og augun kunna að meta mjúka fágun.

Viður: sérhvert tré er einstök sköpun, alveg eins og eldhúsið þitt
Fólk finnur fyrir öryggi í umhverfi sem er úr viði og hann hefur tengingu við vellíðan og hlýju. Líkt og sérhver einstakur trjástofn, er bulthaup b3 eldhúsið þitt líka einstakt. Frágangur handverksfólks tryggir að náttúrulegir eiginleikar efniviðarins varðveitast. Þú getur fundið það, finnur lyktina af því, og séð það.


Viðarspónn: náttúruleg gæði
Einn einstakur trjábolur er notaður til þess að sérhanna viðarspónsframhliðar fyrir hvert bulthaup b3 eldhús. Valinn er nákvæmlega réttur spónn og hann settur saman í höndum af handverksmeistara frá bulthaup. Útkoman er samhæft útlit sem skapar góða heildarmynd í vistarverum þínum.
Gegnheill viður: eins sterkbyggður og hann þarf að vera
Viður er svo verðmætur að hann er einungis notaður í sérstökum tilgangi hjá bulthaup. Gegnheilar viðarframhliðar eru 13 mm þykkar, sem gerir þær eins sterkar og þær þurfa að vera en þó eins fíngerðar eins og hægt er að komast af með. Framhliðarnar eru gerðar úr fimm lögum í allt, þremur lögum af gegnheilum við með tveimur fínum lögum af áli þar á milli, sem skapar einkar aðlaðandi brúnir.