Fara í meginmál
Sjálfbærni

Kolefnishlutlausar innréttingar

Häcker var fyrsti innréttingaframleiðandinn sem fékk kolefnishlutleysi vottað fyrir allt vöruúrval sitt. Þetta hefur verið sannreynt með CFP rannsókn á vegum stofnunarinnar Focus Zukunft, sem miðar að því að mæla losun gróðurhúsalofttegunda á lífsferil vörunnar, frá vöggu til viðskiptavinar.

Kolefnishlutlaust fyrirtæki

Kolefnishlutlaust fyrirtæki

Fyrirtækið Häcker Küchen er einnig vottað sem ”kolefnishlutlaus framleiðandi” af Deutsche Gütegemeinschaft Möbel (DGM). Häcker gerir ítarlegan CO2 efnahagsreikning. Losun er skráð, jákvæður sparnaður sem þegar hefur náðst í fyrirtækinu er vegin og metin, og bætt fyrir það sem upp á vantar með því að kaupa loftslagsverndarvottorð. Þessi vottorð styðja mikilvæg loftslagsverndarverkefni um allan heim, t.d. framleiðslu á endurnýjanlegri orku eða skógrækt.

Kolefnishlutleysi vottað af Fokus Zukunft

Kolefnishlutleysi vottað af Fokus Zukunft

Häcker hefur rekið umhverfisstjórnunarkerfi frá árinu 2009 (DIN ISO 14001) og orkustjórnunarkerfi frá 2014 (DIN ISO 50001).