Innréttingar fyrir heilbrigt líf
Häcker þróar og framleiðir nútímalegar innréttingar sem eru þarfamiðaðar, framsýnar og uppfylla há sjálfbærniviðmið fyrirtækisins.

Kolefnishlutleysi
Innréttingar frá Häcker eru kolefnishlutlausar og er fyrirtækið Häcker Küchen einnig vottaður kolefnishlutlaus framleiðandi. Með Häcker færðu innréttingu sem uppfyllir há viðmið hvað varðar vistfræðilega vitund.

"Golden M" Verðlaun
Häcker GmbH & Co. KG hlaut "Golden M" verðlaunin fyrir mikil gæði sem og fyrirmyndar heilsu- og umhverfisvernd frá Deutsche Gütegemeinschaft Möbel (DGM). Prófunarviðmið DGM fela í sér núverandi gæða-, umhverfis- og losunarstaðla, með sérstakri áherslu á endingu, stöðugleika og framleiðslugæði vörunnar. DGM fer einnig yfir mengunarlosun og öryggisþætti og gefur aðeins „Golden M“ gæðamerkið sitt til innréttinga sem uppfylla allar kröfur að fullu.

Húðun á vatnsgrunni
Vatnsborin húðun er notuð vegna lágs innihalds rokgjarnra lífrænna efnasambanda. Húðun á vatnsgrunni er umhverfisvæn, en þar er vatn notað sem leysir til að dreifa kvoðunni sem notuð er til að búa til húðunina.
-044fa9e7.jpg&w=3840&q=80)
PURemission - formaldehýðskert viðarefni
Umræðuefni eins og formaldehýð er ofarlega á baugi hjá neytendum í dag. Viður inniheldur formaldehýð frá náttúrunnar hendi og getur efnasambandið lekið út í andrúmsloftið í litlum skömmtum. Losun formaldehýðs frá viði eykst við vinnslu yfir í timbur og viðarplötur. Häcker er sem stendur einn stærsti innréttingaframleiðandinn sem býður upp á viðarefni með sem lægstri losun formaldehýðs.

PUResist - vatnsheldar brúnir
PUResist límtækni tryggir framúrskarandi gæði fyrir allar brúnir. Þær hrinda frá sér vatni, eru þolnar og líta frábærlega út þökk sé ósýnilegum samskeytum. Og límingin á þessum brúnum? Formaldehýð og leysiefnalaus!

Umhverfisvottanir
- KLIMAPAKT für die Möbelindustrie: kolefnishlutlaus framleiðsla samkvæmt Deutschen Gütegemeinschaft Möbel (DGM)
- KLIMANEUTRALER Möbelhersteller: kolefnishlutlaus framleiðandi samkvæmt Deutschen Gütegemeinschaft Möbel (DGM)
- MADY IN GERMANY: vísun til landfræðilegs uppruna „Innréttingar framleiddar í Þýskalandi“
- EMISSIONSKLASSE für Möbel: A, losunarflokkur innréttinga samkvæmt RAL-RG 437
-65ee98aa.jpg&w=3840&q=80)
Umhverfisvottanir
- PEFC: stuðlun að sjálfbærri skógrækt
- TÜV Rheinland: vottað orkustýringarkerfi
- TÜV Rheinland: öryggisprófun fyrir allar innréttingar
- TÜV Rheinland: vottað umhverfisstjórnunarkerfi
- E1 vottun: formaldehýðskertar innréttingar