Fara í meginmál

Fyrir heilnæma innivist

Lausnin okkar: PURemission

Lausnin okkar: PURemission

Háþróuð læknavísindi, hollt mataræði og jafnvægi í umhverfinu: allir þessir þættir hafa mikil áhrif á heilbrigða lífshætti. Gallar nútíma lífshátta: streita og ákveðin efni í umhverfinu geta leitt til óþols og álags. Umræðuefni eins og formaldehýð er ofarlega á baugi hjá neytendum í dag.

Hvað er formaldehýð?

Hvað er formaldehýð?

Formaldehýð er óbundið, rokgjarnt, lífrænt efnasamband sem finnst í við frá náttúrunnar hendi. Efnið er einnig notað í framleiðslu á viðarefnum og finnst í algengum bindiefnum t.d. í lími og melamín -, urea- og fenólkvoðu. Formaldehýð er skaðlegt heilsu manna þegar efnið finnst í andrúmsloftinu fyrir ofan ákveðið þröskuldsgildi.

Framlag okkar

Framlag okkar

Häcker hefur, síðan í september 2017, skipt út vörubirgðum sínum og meðhöndlað viðarefni þannig að formaldehýðinnihald þeirra hefur verið minnkað verulega. Með vönduðu vali timburefna og birgja hefur fyrirtækinu tekist að uppfylla strangari viðmiðunarreglur um losun í samræmi við US CARB2 (93120) og TSCA titil 6. Hámarksgildi evrópskra viðmiðunarreglna fyrir losunarflokk E1 eru uppfyllt og er á sumum svæðum jafnvel langt undir þessu viðmiði. Með PURemission höfum við skapað bestu aðstæður fyrir heilnæma innivist, sett viðmið fyrir viðskiptavini okkar og fyrir betra umhverfi.