PUResist
Öryggi þegar raki er til staðar

Hvers vegna PUResist?
Hvaða áhrif hefur það á brúnir Häcker innréttinga þegar þær komast í tæri við mikið magn af vatnsgufu? Þökk sé PUResist, nýstárlegri og hágæða límtækni, er einfalda svarið ekkert!

Þaulprófað
Til að standa við loforð um gæði er efniviður prófaður reglulega á tilraunastofum Häcker varðandi mótstöðu gegn vatnsgufu, raka og breytilegu loftslagi. Prófunarumhverfið líkir eftir öfgakenndum aðstæðum sem eru langt umfram það raunverulega álag sem búast má við. Häcker er tæknilega fær um að framleiða mjóa parta með vatnsheldum þykkum brúnum sem uppfylla hæstu kröfur hvað varðar gæði og útlit. Hvort sem um ræðir heita gufu eða vatnsslettur, eru Häcker innréttingar varðar alls staðar á sjálfbæran hátt.

Framlag okkar
Hágæða „PUResist“ líming er notuð á allar brúnir Häcker innréttinga. Pólýúretan viðbragðslímingin er bæði formaldehýð- og leysiefnalaus.
PUResist líming þýðir:
- vörn gegn raka, t.d. á svæðum kringum eldunaraðstöðu og vask
- sterka viðloðun milli viðarefna og brúna
- frábært útlit og þægilega viðkomu þökk sé ósýnilegum samskeytum
- framúrskarandi gæði fyrir allar brúnir
PUResist og PURemission: Alhliða vörn fyrir eldhúsið þitt og fyrir þig.